EduAtlas

Stuðningsfulltrúi óskast í Dalskóla

at Dalskóli, Reykjavík, Iceland

Closes 7 DecNew

Dalskóli er samrekinn grunnskóli ásamt frístundaheimilinu Úlfabyggð með um 500 börnum. Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga. Dalskóli er þróunarskóli í leiðsagnarnámi. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Helstu verkefni og ábyrgð Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi. Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra sérkennslu. Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu. Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum. Hæfniskröfur Hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla og áhugi á að vinna með börnum. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum. Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar Fríðindi í starfi Menningarkort- bókasafnskort Samgöngustyrkur Sundkort Heilsuræktarstyrkur Starfið er laust frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi en um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026-2027. Starfshlutfall er 60-75%. Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Read the full advert on jobs.50skills.com →

More jobs at Dalskóli

Details

Closing date
7 December 2026
Add the deadline to your calendar
Contract
Part-time
First seen
23 November 2026
Apply on
jobs.50skills.com
Listed by

Listed on EduAtlas, the largest worldwide record of live school vacancies.

Dalskóli: full school record · More vacancies in Iceland

More like this: Schools hiring in Reykjavík · Schools hiring in Iceland