Stuðningsfulltrúi óskast í Dalskóla
Closes
Part-timeSupport role
Dalskóli er samrekinn grunnskóli ásamt frístundaheimilinu Úlfabyggð með um 500 börnum. Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar…
at Dalskóli, Reykjavík, Iceland
Full-timeSalary not stated
Closes 1 DecPosted this week
Welcome back. Did you apply?
It goes in My jobs.
We’ll email you this job, its facts and the school, so it’s with the rest.
Know someone who would suit this too?
Leikskólahluti Dalskóla Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað fólk óskast til starfa í leikskólahluta Dalskóla í Úlfarsárdal. Okkur vantar starfsmenn til að vinna með bæði yngri og eldri börnum. Í Dalskóla er unnið með hugmyndafæði Reggio Emilia þar sem skapandi starf er í forgangi með öllum börnum. Dalskóli er samrekinn leik-, grunn- og frístundaskóli. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Dalskóli er einn af þekkingarskólum borgarinnar í leiðsagnarnámi. Í Dalskóla er mikið um þemabundið smiðjustarf í samfélags- og náttúrugreinum auk samvinnu kennara. Í skólanum er lögð áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem barnið er í brennidepli og nær að njóta sín í leik og starfi. Stutt er í náttúruna og nýtum við það með því að fara í skemmtilegar ævintýraferðir. Dalskóli er stækkandi leikskóli og eru tvær elstu deildar leikskólans starfandi í nýju húsnæði sem staðsett er við grunnskólahluta. Á yngri deildum skólans eru 6 deildir en þar dvelja börn á aldrinum eins til þriggja ára. Húsnæði og öll aðstaða er til fyrirmyndar bæði fyrir börn sem og starfsmenn. Fríðindi í starfi: Menningarkort – bókasafnskort Samgöngustyrkur Sundkort 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf Heilsuræktarstyrkur Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Starfið er laust eða eftir samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra. Hæfniskröfur Leikskólakennaramenntun, eða önnur uppeldismenntun æskileg Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar Frekari upplýsingar um starfið Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100% Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Þórarinsdóttir Solveig.Thorarinsdottir@rvkskolar.is sími 8998107 Dalskóli leikskólahluti Úlfarsbraut 11
Closes
Part-timeSupport role
Dalskóli er samrekinn grunnskóli ásamt frístundaheimilinu Úlfabyggð með um 500 börnum. Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar…
Dalskóli, Reykjavík, Iceland.
Listed on EduAtlas, the largest worldwide record of live school vacancies. 2 similar posts in Iceland.
Dalskóli: full school record · More vacancies in Iceland
More like this: Schools hiring in Reykjavík · Schools hiring in Iceland