EduAtlas

Skapandi markaðsmanneskja

at Reykjavík University, Reykjavík, Iceland

NewBe an early applicantActively hiring

Apply

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugri og skapandi markaðsmanneskju í samheldið teymi í samskiptadeild. Viðkomandi mun vinna náið með forstöðumanni samskipta og teyminu öllu að markaðsmálum, þar sem áherslan er á að miðla námi, vísindum, rannsóknum og sérstöðu HR á lifandi hátt. Starfið felur m.a. í sér daglega umsjón með markaðsherferðum, efnissköpun fyrir samfélagsmiðla, samstarf við nemendur og starfsfólk, uppbyggingu alumni-tengslanets HR og þátttöku í kynningarstarfi. Helstu verkefni Dagleg umsjón og eftirfylgni markaðsherferða á innlendum og erlendum markaði, m.a. samskipti við auglýsingastofu, akademískar deildir og samstarfsaðila Efnissköpun fyrir samfélagsmiðla HR, dagleg umsjón og svörun Mælingar, markmiðasetning og greining á árangri samfélagsmiðla Umsjón með hópi nemenda (áHRifavalda) sem taka þátt í efnissköpun fyrir samfélagsmiðla HR Textaskrif á íslensku og ensku Uppbygging alumni-tengslanets HR og þátttaka í innleiðingu CRM-kerfis Markaðssetning á viðburðum í nafni HR og viðvera á stærri kynningarviðburðum á borð við Háskóladaginn, UTmessu og Vísindavöku, auk framhaldsskólakynninga Hæfniskröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi Reynsla af markaðsstörfum, sérstaklega á samfélagsmiðlum Reynsla af efnissköpun og myndbandsgerð fyrir Instagram Reels og Tik Tok Reynsla af stafrænni markaðssetningu og grunnþekking á Meta Ads Manager Reynsla af mælingum og greiningu á árangri Framúrskarandi ritfærni á íslensku og ensku Reynsla af markaðssetningu gagnvart erlendum markhópum er kostur Þekking á CRM-kerfum er kostur Skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna vel í hópi Umsóknarfrestur er til og með 6. desember en umsóknir verða metnar jafnóðum og þær berast. Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, asthildurg@ru.is . eða Elísabet Þ. Jóhannesdóttir, mannauðssérfræðingur, elisabetj@ru.is. Háskólinn í Reykjavík Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.600 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.

Other vacancies at Reykjavík University

Faculty position in Biomedical Engineering

Full-timeHealth

Reykjavík University invites applications for a full-time, on-site permanent faculty position in Biomedical Engineering within the Department of Engineering. The position is open…

Faculty position in Physics

Full-time

Reykjavik University seeks applicants for an on site, permanent, full time faculty position in Physics, in the Department of Engineering. We are open to various specializations…

Postdoctoral Researcher in Cybersecurity

Starts flexible

Full-time

Reykjavík University invites applications for a Postdoctoral Researcher in cybersecurity to join the Frost Shield research project, funded by Rannis. The position focuses on…

Details

Contract
Full-time
First seen
23 November 2026
Type
University
Apply on
jobs.50skills.com
Listed by

Listed on EduAtlas, the largest worldwide record of live school vacancies.

Reykjavík University: full school record · More vacancies in Iceland

More like this: Schools hiring in Reykjavík · Schools hiring in Iceland