Kennari í náttúrugreinum – Háteigsskóli
at Háteigsskóli, Reykjavík, Iceland
Full-timeSalary not stated
Closes 3 DecPosted this week
Welcome back. Did you apply?
It goes in My jobs.
We’ll email you this job, its facts and the school, so it’s with the rest.
Know someone who would suit this too?
The advert
Háteigsskóli óskar eftir að ráða kennara í náttúrugreinum á unglingastigi frá 1. janúar 2027 og út skólaárið. Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Skólastarfið byggir á menntastefnu Reyjavíkurborgar, leiðsagnarnámi og teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi. Háteigsskóli leggur ennfremur áherslu á góðan starfsanda og hefur skólinn hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan. Um er að ræða 100% stöðu tímabundið með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Helstu verkefni og ábyrgð Kennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk. Hæfniskröfur Kennaramenntun áskilin. Áhugi á að starfa með börnum. Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum. Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Reynsla og menntun sem nýtist í kennslu náttúrugreina. Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði. Góð íslenskukunnátta. Hreint sakavottorð. Teymishugsun. Hlunnindi í starfi Menningarkort og bókasafnskort. Samgöngustyrkur. Sundkort. Heilsuræktarstyrktur. Frekari upplýsingar um starfið. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Norberg Sigfúsdóttir, skólastjóri í tölvupósti gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is eða í síma 411-6870.
On the map
Háteigsskóli, Reykjavík, Iceland.
Details
- Closing date
- 3 December 2026
Add the deadline to your calendar - Contract
- Full-time
- First seen
- 20 November 2026
- Apply on
- jobs.50skills.com
- Listed by
Listed on EduAtlas, the largest worldwide record of live school vacancies.
Háteigsskóli: full school record · More vacancies in Iceland
More like this: Schools hiring in Reykjavík · Schools hiring in Iceland